Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs
Styrktarsjóður SSF - úthlutunarreglur - í gildi frá 01.03.2012.
Tilgangur Styrktarsjóðs SSF
Meginverkefni Styrktarsjóðs SSF er að greiða dagpeninga til félagsmanna sem missa laun vegna sjúkdóma eða slysa. Einnig að styrkja félagsmenn sína við ýmsar fyrirbyggjandi skoðanir og meðferðir, s.s. krabbameins- og hjartaskoðun og sjúkraþjálfun. Hér á eftir er upptalning á öllum styrkjum, sem hægt er að sækja um nú. Athygli er vakin á því að skilyrði fyrir styrkjum hærri en 100.000 kr. er að félagsmaður sé fastráðinn og hafi greitt félagsgjöld til SSF í 12 mánuði.
Sjóðurinn er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda sem greiða upphæð sem nemur 0,5% af grunnlaunum starfsmanna. Þar sem fjármagn sjóðsins er takmarkað verður einnig að takmarka til hvaða málaflokka er greitt hverju sinni. Úthlutunarreglur eru í stöðugri endurskoðun, með tilliti til þess að hægt sé að sinna meginverkefnum sjóðsins.
Stjórn sjóðsins vill vekja athygli á því að í hvert sinn sem sótt er um styrk, þarf að skila umsóknarblaði og frumriti reikninga, ásamt beiðni eða vottorðum sé þess krafist í úthlutunarreglunum.
Kostnaður við umbeðin læknisvottorð er endurgreiddur gegn framvísun frumrits reikninga.
Lausráðnir starfsmenn og sumarstarfsmenn geta sótt um styrki skv. liðum 2, 3, 4, 5, 6 og 9, þ.e. sjúkraþjálfun/nudd, krabbameinsskoðun, hjartaskoðun, sálfræðimeðferð, göngugreiningu og þyngdarstjórnun.
1. Sjúkradagpeningar
Sjúkradagpeningar eru einungis greiddir þeim sem eru í starfi, en lenda tímabundið út af launaskrá. Félagsmenn fá greitt miðað við starfshlutfall sl. 12 mánuði. Dagpeningarnir eru 80% af launum, (hámarksgreiðsla er 80% af efsta launaflokki SSF). Sjúkradagpeningar greiðast í allt að 6 mánuði vegna veikinda félagsmanna, maka þeirra eða barna. Í sérstökum tilvikum er hægt að óska eftir framhaldsgreiðslum í allt að 6 mánuði og verða þær umsóknir metnar sérstaklega.
2. Sjúkraþjálfun/nudd
Félagsmenn fá styrk vegna meðferðar hjá löggiltum sjúkraþjálfara, sjúkranuddara, kírópraktor eða sambærilegrar meðferðar í allt að 36 skipti á ári. Styrkurinn er að hámarki kr. 2.500 fyrir hvert skipti, þó aldrei hærri en 75% af kostnaði.
3. Krabbameinsskoðun
Sjóðurinn greiðir grunnkrabbameinsskoðun að hámarki kr. 3.700 gegn framvísun kvittunar. Ef umsóknarblað á heimasíðu SSF er tekið með útfyllt í skoðun, þarf viðkomandi ekki að leggja út fyrir skoðunargjaldi. Ekki er víst að þetta eigi við alls staðar á landsbyggðinni. Ef félagsmenn þurfa að fara í framhaldsskoðun vegna krabbameinsleitar og t.d. blöðruháls og ristilskoðunar, greiðir sjóðurinn þá skoðun, að hámarki kr. 25.000.
4. Hjartaskoðun - áhættumat
Sjóðurinn greiðir áhættumatsskoðun hjá Hjartavernd eða öðrum viðurkenndum aðilum, að hámarki kr. 18.890.
5. Sálfræðimeðferð
Félagsmenn fá styrk vegna meðferðar hjá eftirtöldum viðurkenndum meðferðaraðilum: félagsráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, geðlækni eða sálfræðingi. Styrkurinn er greiddur fyrir 12 skipti á ári að hámarki kr. 8.000 fyrir hvert skipti.
6. Göngugreining og hjálpartæki
Fyrir göngumælingu/innlegg, meðgöngubelti og önnur minniháttar hjálpartæki er heimilt að endurgreiða allt að 75% af útlögðum kostnaði. Hámarksstyrkur vegna þessa er kr. 20.000. Um önnur hjálpartæki fer samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar hverju sinni.
7. Reykingar
Sjóðurinn greiðir styrk til þeirra sem sækja námskeið til að hætta að reykja hjá viðurkenndum aðilum s.s. Krabbameinsfélaginu og heilsuverndarstöðvum, að hámarki kr. 25.000.
8. Dvöl á heilsustofnun
Sjóðurinn greiðir kostnað vegna meðferðar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði eða á sambærilegum stað /stofnun allt að kr. 5.000 á dag í allt að 28 daga á ári. Skila ber frumriti reikninga þar sem kemur fram hve marga daga viðkomandi hefur dvalið.
9. Þyngdarstjórnun
Félagsmenn fá styrk vegna námskeiða sem haldin eru vegna þyngdarátaks skv. læknisráði. Skila verður beiðni frá trúnaðar- eða heimilislækni um að viðkomandi hafi þurft á meðferðinni að halda ásamt frumriti reikninga og staðfestingu um að viðkomandi hafi lokið námskeiðinu. Greitt er 75% af námskeiðsgjaldi að hámarki kr. 50.000 á ári.
10. Sjóngler / linsur
Sjóðurinn greiðir styrk vegna kaupa á dýrum sjónglerjum eða linsum einu sinni á hverjum 24 mánuðum. Styrkurinn er 50% af verði sjónglerja sem kosta kr. 35.000 eða meira, en ekki umgjörða, þó er aldrei greidd hærri upphæð en kr. 70.000. Hægt er að sækja um styrk vegna augnlinsa ef kostnaður vegna þeirra fer fram yfir 20.000, styrkurinn er 50% af verði augnlinsa, en þó er aldrei greidd hærri upphæð en kr. 20.000.
11. Laseraðgerðir á augum
Sjóðurinn greiðir styrk vegna laseraðgerða á augum. Greiddar eru að að hámarki kr. 60.000 fyrir hvort auga. Styrkurinn er aðeins greiddur einu sinni fyrir hvort auga.
12. Foreldranámskeið
Sjóðurinn greiðir styrk vegna hvers konar foreldranámskeiða. Endurgreitt er 75% af kostnaði við námskeiðið, þó að hámarki kr. 15.000.
13. Tækni-glasafrjóvgun-ættleiðingar
Sjóðurinn endurgreiðir hluta kostnaðar vegna tækni- og glasafrjóvgana svo og ættleiðinga. Styrkurinn er 75% af reikningi hverju sinni, þó að hámarki kr. 350.000 á hverjum 36 mánuðum.
14. Heyrnartæki
Sjóðurinn greiðir styrk vegna kaupa á heyrnartækjum. Endurgreitt er 75% af kostnaði við heyrnartæki, þó að hámarki kr. 150.000. Hægt er að sækja um styrk vegna heyrnartækja á tveggja ára fresti.
15. Útfararstyrkir
Sjóðurinn greiðir útfararstyrk við andlát félagsmanns SSF, sem er í starfi við andlát. Upphæð útfararstyrks er kr. 350.000. Heimilt er að greiða vegna andláts barna 20 ára og yngri, enda hafi barn sannarlega verið á framfæri félagsmanns SSF.
Samþykkt á fundi stjórnar Styrktarsjóðs SSF 23. febrúar 2012 og gildir frá 1. mars 2012 .
Athugið að greiðslur úr styrktarsjóði eru skattskyldar, en aðeins er tekin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum (ekki almennum styrkjum) svo skattur af þeim greiðist í álagningu næsta árs.
Stjórn Styrktarsjóðs SSF
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



