Beint á leiðarkerfi vefsins

Umsókn um sjúkradagpeninga í Styrktarsjóð SSF


Umsóknareyðublað:
Athugið að umsóknareyðublaðið er ískrifanlegt pdf eyðublöð.  Þar af leiðandi getur þú skrifað inn í eyðublaðið á netinu og prentað það síðan út og sent ásamt fylgigögnum til SSF.  Það skal áréttað að ekki er um að ræða rafræn skil og það sem skrifað er inní skjölin vistast ekki heldur verður að prenta útfyllta umsókn út.
1.       Opna umsóknareyðublað á heimasíðu SSF.
2.       Skrifað inn í skjalið, athugið að undirskrift og staðfesting starfsmannahalds/yfirmanns verður áfram að handskrifa.
3.       PRENTA
4.       Senda útfyllta umsókn ásamt fylgigögnum - þar með útfylltu starfsvottorði frá atvinnuveitanda - til SSF
ATH.  Hægt er að prenta umsókn beint út og handskrifa

VIRK starfsendurhæfingarsjóður:
Umsækjendum um sjúkradagpeninga er bent á að SSF hefur hafið samstarf við VIRK starfsendurhæfingarsjóð.  Guðleif Birna Leifsdóttir gudleifl@bhm.is sími 588 8396 og Kristbjörg Leifsdóttir kristbjorgl@bhm.is  sími 581 2090 starfa sem ráðgjafar hjá VIRK og þjónusta félagsmenn SSF. Öllum þeim sem sjá fram á, skerta starfsorku eða fjarveru frá störfum vegna veikinda, í mánuð eða meira er ráðlagt að setja sig í samband við aðra hvora þeirra í tölvupósti eða í síma.  Til að fræðast nánar um starfsemi VIRK má finna upplýsingar á heimasíðu sjóðsins www.virk.is eða með því að skoða bæklinginn ,,Úr veikindum í vinnu" sem nálgast má hér.

Sækja umsóknareyðublað styrktarsjóður, sjúkradagpeningar

Vinsamlega gætið þess að fylla umsókn vel og skilmerkilega út og flýta þannig fyrir afgreiðslu með réttum upplýsingum.


Toppmynd