Beint á leiðarkerfi vefsins

Íbúð Styrktarsjóðs SSF

Íbúð í eigu styrktarsjóðs SSF

Á þingi SSF 2001 var samþykkt að Styrktarsjóður SSF myndi kaupa íbúð í grennd við Landsspítalann í Reykjavík til afnota fyrir þá félagsmenn sem þyrftu að dvelja fjarri heimili sínu vegna alvarlegra læknisaðgerða. Stjórn Styrktarsjóðs gerði samning við Krabbameinsfélag Íslands um að félagið annist rekstur íbúðarinnar og sjái alfarið um úthlutun og allt utanumhald vegna hennar. Á árinu 2004 fannst loks íbúð sem Krabbameinsfélagið taldi henta og er í sama húsi og aðrar íbúðir í umsjón þess.

Þann 17. janúar 2005 var íbúðin loks fullbúin til notkunar og af því tilefni mættu stjórnarmenn SSF og forystumenn Krabbameinsfélagsins til látlausrar athafnar þar sem m.a. Guðrún Agnarsdóttir framkvæmdastjóri KÍ rakti aðdraganda málsins og hrósaði félagsmönnum SSF fyrir þá myndarlegu aðstoð við langveika félagsmenn sem birtist í því að þessi íbúð er keypt. Að því loknu flutti prestur Háteigssafnaðar hugvekju og blessaði íbúðina og þá sem þar munu búa.

Íbúðin er ætluð félagsmönnun SSF og fjölskyldum þeirra, sem vegna alvarlegra veikindaþurfa að leita læknishjálpar á spítala og/eða þurfa að mæta á göngudeildir eða í endurhæfingu spítalanna. Sólarhringsgjald íbúðar er kr. 1500. Innifalið er þrif, rúmföt og handklæði.
Félagsmenn sem óska eftir að sækja um dvöl í íbúðinni vinsamlegast hafið samband við Jónínu Pálsdóttur í síma 540-6100 eða með tölvupósti á netfangið jonina@ssf.is .  

Þann tíma sem félagsmenn SSF nýta ekki fær Krabbameinsfélagið að nýta fyrir krabbameinssjúklinga sem þurfa að sækja meðferð hjá Geisladeild Landsspítalans (LSH)


Toppmynd