Styrktarsjóður SSF
Styrktarsjóður SSF
Styrktarsjóðurinn er eign Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Sjóðurinn er myndaður af samningsbundnum greiðslum atvinnurekenda eins og þær eru á hverjum tíma.
Félagsmenn geta sótt um styrki vegna margvíslegra þátta. Sjá nánar úthlutunarreglur Styrktarsjóðs.
Nokkuð hefur verið um að umsóknir sem berast Styrktarsjóði séu ófullnægjandi eða fylgigögn vanti og getur slíkt tafið fyrir afgreiðslu. Því hefur SSF tekið í notkun notendavænni umsóknareyðublöð, svokölluð ískrifanleg pdf-skjöl. Með því móti geta félagsmenn á auðveldan hátt fyllt út umsókn á heimasíðu SSF, prentað hana síðan út og sent ásamt fylgigögnum til afgreiðslu hjá Styrktarsjóði. Það skal tekið fram að áfram verður að fá undirskrift og stimpil starfsmannahalds eða yfirmanns til staðfestingar á starfsaldri og starfshlutfalli félagsmannas. Þá er nauðsynlegt að senda frumrit af reikningum þar sem greiðslur úr styrktarsjóði eru endurgreiðsla á kostnaði sem umsækjendur hafa þegar greitt.
Íbúð styrktarsjóðs. Á þingi SSF 2001 var samþykkt að styrktarsjóður keypti íbúð til afnota fyrir félagsmenn sem þurfa að leita sér lækninga í Reykjavík. Íbúðin er í umsjá geislameðferða krabbameina á Landspítala - háskólasjúkrahúsi sjá nánar hér um íbúðina
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



