Úthlutunarreglur Menntunarsjóðs SSF
1. Umsóknir um styrki skulu hafa borist fyrir 15. janúar vegna náms sem lokið er á haustmisseri og 15. júní vegna náms sem lokið er á vormisseri. Ef nám er stundað á sumarmisseri skal sótt um styrk vegna þess fyrir 15. janúar og er umsókn um styrk vegna sumarnáms afgreidd sérstaklega samhliða umsóknum vegna haustmisseris.
2. Sjóðnum er ætlað að veita styrki vegna kostnaðar við menntun, símenntun og endurmenntun. Einnig við námskeið í námstækni, og námskeið sem nýtist til félagsstarfa að mati stjórnar.
Hægt er að sækja um styrki vegna náms eða hluta náms sem félagsmenn hafa lokið samhliða starfi undanfarna 12 mánuði.
Einungis eru veittir styrkir vegna námsgjalda en ekki vegna annars kostnaðar sem til fellur við námið s.s. bókakostnaðar eða ferðakostnaðar.
3. Meginviðfangsefni sjóðsins er að veita styrki til greiðslu skólagjalda vegna náms sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
- er stundað samhliða starfi í fjármálafyrirtækjum
- sem veitir fullgildar námseiningar á framhaldsskóla- eða háskólastigi.
4. Tungumálanám sem ekki er einingametið skv ofangreindu getur mest fengið styrk sem nemur helmingi skólagjalda en þó eigi hærri upphæð en sem nemur 1/5 af hámarksupphæð styrks pr misseri.
5. Félagsmenn sem taka sér launalaust leyfi frá störfum en snúa til baka til starfa að loknu námi í allt að 12 mánuði, hafa eftir tveggja mánaða starf og fastráðningu að loknu námi sama aðgang að styrkjum úr sjóðnum og þeir félagsmenn sem stunda nám samhliða starfi enda hafi þeir amk. þriggja ára samfellda starfsreynslu skv kjarasamningi SSF við upphaf náms, sýni gilda námsframvindu á tímabilinu og sæki um styrk þegar þeir eru fastráðnir til starfa aftur hjá fyrirtæki sem er aðili að kjarasamningi SSF. Ákvæði þetta gildir einu sinni fyrir hvern einstakling.
6. Stjórn sjóðsins er heimilt að hafna umsókn um styrk sé tilgangur hennar andstæður markmiðum eða tilgangi sjóðsins.
7. Fullgild umsókn í Menntunarsjóð SSF samanstendur af:
- skilmerkilega útfylltu umsóknareyðublaði eins og það er hverju sinni á vef SSF, og sem skilað er innan tilskilins frests til skrifstofu SSF.
- frumriti greiðslukvittunar vegna námsgjalda
- staðfestingu á námi sem lokið er í hverjum áfanga.
Í þeim tilfellum sem fylgigögn (s.s. námsvottorð/einkunnir) eru ekki tilbúin við sendingu umsóknar skulu þau hafa borist skrifstofu SSF innan þriggja vikna frá lokum umsóknarfrests, ella fellur úthlutun niður.
8. Umsóknir eru skoðaðar og afgreiddar tvisvar á ári, 15. janúar og 15. júní.
Hámarksfjárhæð hvers styrks pr misseri er allt að kr. 150.000- og tekur vísitölubreytingum ef fjárhagur sjóðsins leyfir slíkt að mati stjórnar.
Ef skerða þarf styrki sjóðsins vegna fjárhagsstöðu þá hefur stjórn heimild til að lækka hámarksfjárhæð.
Samþykkt á 43. þingi SSF apríl 2007.
Félagsmönnum er bent á að skoða vel starfsreglur sjóðsins.
Athugið að greiðslur úr Menntunarsjóði eru framtalsskyldar á skattframtali.
Stjórn Menntunarsjóðs SSF
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



