Rafrænar umsóknir í Menntunarsjóð
Mikilvægt að hafa í huga:
- Með rafrænu umsókninni verður að fylgja ,,Staðfesting á greiðslu námsgjalda" og ,,Staðfesting félagsaðildar" í formi afrits af síðasta tiltæka launaseðli.
- Þegar umsóknir í Menntunarsjóð voru á pappír þurftu umsækjendur að fá undirskrift yfirmanns eða starfsmannahalds en í stað þess þarf núna að senda afrit af launaseðli þar sem kemur fram hvert greitt er til stéttarfélags. Það skal tekið fram að umsækjendum er frjálst að fela aðrar upplýsingar á launaseðlum en nafn, starfsaldur og greiðslur til stéttarfélags. Þá verða upplýsingar af launaseðlum ekki nýttar til annarrar úrvinnslu en afgreiðslu viðkomandi umsóknar.
- Þegar viðhengi hafa verið hengd við umsókn er mikilvægt að loka þeim glugga með því að ýta á "Til baka " takkann en ekki með "X" -inu.
ATH. Þegar umsókn er send fær umsækjandi sendan svarpóst um að umsóknin hafi komist til skila, ef sá póstur berst ekki þá hefur umsóknin ekki skilað sér!
Sækja rafrænt um styrk í Menntunarsjóð SSF
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



