Nám
Félagsmönnum SSF býðst að jafnaði innan sinna vinnustaða fjölbreytt úrval námskeiða og ýmiskonar fræðslu. Félagsmenn SSF eiga fjölmargar leiðir til að bæta við þekkingu sína samhliða starfi. Þar er um að ræða menntun á ýmsum skólastigum, framhaldsskóla, háskóla eða framhaldsnám í háskóla. Þess er einnig að geta að nú ræður búseta manna ekki möguleikum sem þeir hafa til skólagöngu. Einnig er fjölbreytt framboð náms á framhaldsskólastigi og á háskólastigi. Hér eru tilgreindir sérstaklega nokkrir námskostir sem bent hefur verið á að henti að stunda samhliða starfi. Þessir valkostir eru ekki tæmandi en við hvetjum félagsmenn til að skoða þá alla og athuga vel hvað mætir best þeirra þörfum fyrir viðbótarnám.
Hvað er færnimappa? Fyrir þá sem ekki hafa útbúið sína eigin ferilskrá og færnimöppu hefur SÍB sett á vefinn gögn sem þægilegt er að nota sem grunnskjöl við að setja saman yfirlit yfir eigin starfsreynslu og menntun sjá hér. Auðvelt er að bæta inn í og breyta vinnubókinni og aðlaga þörfum hvers og eins. Markmið með þessum gögnum er að hvetja félagsmenn alla til að koma sér upp skýru yfirliti yfir eigin þekkingu sem þeir sjálfir geta uppfært og bætt við. Skýr og greinargóð færnimappa er hagnýtt verkfæri fyrir hvern þann sem hefur þannig gott skipulag á gögnum um sjálfan sig og hefur þar með yfirsýn eigið verðmæti á vinnumarkaði.
Grein úr SÍB blaðinu frá ágúst 2002 Hæfnimappan – tæki til sjálfsþekkingar og til að skilgreina þekkingu og hæfni á vinnumarkaði (378 KB, PDF skjal)
Til að gera sér grein fyrir eigin þekkingu getur verið hagnýtt að setja saman eigin starfsferilskrá og fá þannig yfirlit yfir þekkingu sína og reynslu í starfi sem og menntun og námskeið. Hér er tengill í dæmigerða ferilskrá á heimasíðu Mannafls sjá hér
Samræmd evrópsk ferilskrá og færnimappa sjá á www.europass.is þar eru tenglar í form til að setja upp ferilskrá inn í samræmt evrópuform á ýmsum tungumálum og síðan er hægt að senda sjálfum sér útfyllta ferilskrá í tölvupósti. Á þessari síðu er jafnframt að finna ýmis hagnýt skjöl fyrir þá sem vilja skoða möguleika á starfi utan Íslands.
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



