Beint á leiðarkerfi vefsins

Jafnréttismál

SSF vill stuðla að því að jafnréttissjónarmið séu höfð að leiðarljósi á vinnumarkaðinum. Að fjármálafyrirtæki og aðildarfélög þeirra hafi að leiðarljósi jafnræðisreglu 65. greinar stjórnarskrárinnar og taki sérstaklega mið af lögum nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Markmið stjórnar SSF er að stuðla að jafnrétti og sporna gegn mismunun á vinnumarkaði hvort sem er á grundvelli kynferðis, fötlunar, kynhneigðar, þjóðernis, kynþáttar, litarháttar, trúarbragða og stöðu að öðru leyti. SSF vill einnig stuðla að því að starfsfólk fjármálafyrirtækja geti samræmt fjölskylduábyrgð og starf. 
Forsvarsmenn fyrirtækja eru sérstaklega hvattir til að vinna að því að jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækis síns og stuðla að því að störf flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf. Einnig að jafnræðis sé gætt við ráðningar í störf, tilfærslu milli starfa, kjaraákvarðanir og aðrar úrlausnir mála. 
Fulltrúar innan stjórnar SSF vinna að jafnréttismálum í samstarfi við jafnréttisnefndir aðildarfélaga SSF og jafnréttisnefnd NFU.

Frá fundi jafnréttisnefnda NFU apríl 2008 í Stokkhólmi
Frá fundi jafnréttisnefnda NFU ág. 2007 í Reykjavík 
Frá fundi jafnréttisnefndar NFU Febrúar 2007
Frá fundi jafnréttisnefndar NFU haust 2006
Skýrsla viðskiptaráðherra um aukinn framgang kvenna í atvinnulífi haust 05 sjá hér
Frá fundi jafnréttisnefndar NFU haust 2005
Frá jafnréttisfundi UNI í Chicago sumar 2005
Frá fundi jafnréttisnefndar NFU í Reykjavík vor 05 sjá hér
Frá fundi jafnréttisnefndar NFU í Khöfn haust 04 sjá hér 

Tenglar í efni um jafnréttismál:
Málþing KRFÍ september 2005
http://www.women2top.net/
http://www.rikk.hi.is/
ttp://www.finansforbundet.dk/default.asp?mId=1033
http://fka.is/?i=2&o=279
http://www.fjolskylda.is/atvinna/jafnrettir/flokkur/13
http://www.hgj.is/


Toppmynd