Fréttir
SSF á fundi með ríkisstjórninni
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra boðuðu aðila vinnumarkaðarins áfund í forsætisráðuneytinu 5, maí sl. Tilefni fundar var að forystumennSamfylkingar og VG vildu heyra mikilvægustu áhersluatriði hópa um helstuverkefni stjórnvalda á næsta kjörtímabili, ekki síst næstu misserin,áður en vinna þeirra við gerð nýs stjórnarsáttmála verður tillykta leidd. Óskað var eftir innleggi frá aðilum vinnumarkaðar íumræðuna sem gæti komið tilvonandi stjórn að notum ístjórnarsáttmála. Rætt var um gjaldeyrishöft, vaxtamál, greiðsluvanda heimilanna, lausa kjarasamninga aðildarfélagaog hvernig samstarf aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórnar gæti best orðiðá næstu vikum og mánuðum. ASÍ leggur til að ráðnir verði a.m.k. 50fjármálaráðgjafar til næstu 6 til 9 mánaða til að aðstoða fólk ígreiðsluvanda og að þeirri kröfu að skuldum verði komið í skil áður engreiðsluaðlögun eða aðstoð fæst verði vikið til hliðar. Tillögur ASÍ mánálgast á fréttavefum. Innlegg vegna bankanna.Helstu áherslur SSF sem Anna Karen frá SSF lagði fyrir ráðherra voru mikilvægi þess að halda í alla þá starfsmenn sem eftir eru hjá fjármálafyrirtækjum til að aðstoða við uppbyggingu fjármálakerfisins. Störf ber að verja og í þeim uppsögnum sem átt hafa sér stað í fjármálageiranum að undanförnumá gera ráð fyrir hugsanlegum landflótta ungs menntaðs fólks. Mikilverðmæti eru fólgin í þeim mannauði sem vann hjá bönkunum og alltþarf að gera til að finna lausnir til handa þessum hópi. Anna Karen lagði tilað fá þessa 50 aðila frá atvinnulausum félagsmönnum SSF eða frá bönkunum í ráðgjafateymisem Gylfi Arnbjörnsson frá ASÍ lagði til að yrði stofnað til að aðstoða fólk í greiðsluvanda. Flýta þarf endurfjármögnun bankanna til að halda heimilum og atvinnulífinu gangandiog eyða óvissu sem ríkt hefur meðal starfsmanna. Anna Karen lagði til aðríkisstjórnin myndi íhuga það vel ef fara ætti í frekari hagræðingu íbankakerfinu með tilheyrandi uppsögnum starfsmanna, sem er varlahagkvæmt að hafa á atvinnuleysisbótum. Anna Karen benti á að ef tveir stórir bankar yrðu sameinaðir gætu þeir verið meðallt að 65% markaðshlutdeild. Gæta þyrfti þess að fækka ekkifjármálafyrirtækjum til þess að viðhalda eðlilegri samkeppni.Hún tók fram að á að innan bankanna væru um 80%starfsmanna nú með laun á bilinu 200-500 þúsund, en það hefur gleymst íneikvæðri umræðu um tekjur bankamanna að undanförnu. Þá væri kynjahlutfallið einnigað nálgast aftur það sem áður var að 75% starfsmanna bankanna eru konur.Ýmislegt annað var rætt og áhugi er fyrir frekara samstarfi beggjaaðila.
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



