Beint á leiðarkerfi vefsins

Færnimappan

Færnimappa - líka fyrir þig!  
Fyrir þá sem ekki hafa útbúið sína eigin ferilskrá og færnimöppu hefur SSF sett á vefinn gögn sem þægilegt er að nota sem grunnskjöl við að setja saman yfirlit yfir eigin starfsreynslu og menntun.  í þessu efni er greinargott lesefni um innihald og framsetningu og einnig er vinnubók sem er sérlega einfalt að nýta þegar kortleggja á eigin reynslu og þekkingu. Auðvelt er að bæta inn í og breyta vinnubókinni og aðlaga þörfum hvers og eins. Markmið með þessum gögnum er að hvetja félagsmenn alla til að koma sér upp skýru yfirliti yfir eigin þekkingu sem þeir sjálfir geta uppfært og bætt við. Skýr og greinargóð færnimappa er hagnýtt verkfæri fyrir hvern þann sem hefur þannig gott skipulag á gögnum um sjálfan sig og hefur þar með yfirsýn eigið verðmæti á vinnumarkaði.

Hér er aðgangur að þrem skjölum sem eru lykill að gerð færnimöppu. Þessi skjöl eru á lokuðu svæði sem félagsmenn hafa aðgang að sjá hér að því gefnu að þeir viti nafn formannsins og stofnár samtakanna.

Til minnis við gerð færnimöppu:
1. Átta sig á því að þetta verk verður ekki unnið í einum rykk – best að taka í nokkrum lotum og leyfa verkinu að þróast.
2. Sækja inn á vef SSF skjöl til að fylla út sbr. leiðbeiningar
3. Safna saman öllum prófskírteinum, vottorðum um þátttöku í ráðstefnum, námskeiðum, félagsstarfi (þetta mun etv ekki allt finnast strax en smám saman bætist í safnið)

4. Fylgja leiðbeiningum sem eru á síðunni um útfyllingu gagna.
5. Fara inn á www.dialang.org og prófa tungumálakunnáttuna – bæta niðurstöðum í færnimöppuna.
6. Safna saman dæmum um viðfangsefni í tómstundum eða ljósmyndum af þeim, gögnum sem útbúin hafa verið vegna félagsstarfs, ræðan sem þú hélst á fundi í fyrra, frumort ljóð osfrv. Tína til dæmi um það sem þú hefur búið til eða unnið að.
7. Yfirfara, lagfæra, breyta og bæta – halda áfram að uppfæra.



 


Toppmynd