Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá UNI

Aðild SSF að UNI
Í gegnum NFU er SSF aðili að UNI (Union Network International). UNI var myndað af eftirfarandi félögum:
 - FIET (Alþjóðasamband starfsfólks í verslunar-, skrifstofu-, fjármála- og þjónustugreinum), sem var stofnað 1904 og var með um 10 milljónir félagsmanna innan sinna vébanda
- CI - Communications International (Alþjóðasamband starfsfólks við samskiptatækni), sem var stofnað 1911 og var með 4,5 milljónir félagsmanna. 
 - IGF - International Graphical Federation (Alþjóðasamband starfsfólks við prentverk og grafíska hönnun), sem var stofnað 1896 og var með um 1 milljón félagsmanna. 
 - MEI - Media and Entertainment International (Alþjóðasamband starfsfólks við fjölmiðlun og í skemmtanaiðnaðinum), sem var stofnað 1965 og var með 200.000 félagsmenn. 
UNI er málsvari 15,5 milljóna félagsmanna í um 1000 landssamböndum/landsfélögum í 140 löndum.  Aðeins landssamtök geta fengið aðild að því en ekki einstök stéttarfélög. Höfuðstöðvar UNI eru í Nyon í nágrenni Genfar.  Það er einnig með skrifstofu í Brussel.
UNI skiptist eftir landssvæðum (regions) í:
UNI-Africa (Afríka)
UNI-Americas (Norður og Suður Ameríka)
UNI-Asia and Pacific (Asía og Kyrrahaf)
UNI-Europa (Evrópa).
Það skiptist einnig eftir starfsgreinum í geira (sectors):
UNI Commerce (verslunar) – stærsti geirinn með um 5 milljónir félagsmanna
UNI Electricity (rafmagns)
UNI Finance (fjármála)
UNI Graphical (grafíska)
UNI Hair & Beauty (hár og snyrti)
UNI IBITS -Industry, Business and IT services (þjónusta í iðnaðar-, viðskipta-, upplýsinga- og tæknigreinum). 
UNI Media, Entertainment and Arts (fjölmiðlar, skemmtanaiðnaður og listir)
UNI Postal (póstur)
UNI Property Services (fasteignaþjónusta)
UNI Social Insurance & Private Health Care (almannatryggingar og heilsugæsla á almennum markaði).
UNI Telecommunications (sími)
UNI Tourism (ferðaþjónusta).
UNI Casino (spilavíti).
Auk þessa eru skipulagðir þrír hópar, sem ganga þvert á starfsgreinaskiptinguna (Interprofessional groups):
UNI Women (konur)
UNI Youth (ungliðar)
UNI Professional & Managerial (sérfræðingar og stjórnunarstarfsfólk

 


Toppmynd