Beint á leiðarkerfi vefsins

Breyttar aðstæður

Ný tækifæri fyrir félagsmenn í samstarfi SSF, SA og NMÍ

Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ), Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa í dag undirritað samstarfssamning um leit og framboð á möguleikum til atvinnusköpunar fyrir félagsmenn SSF. Fjármálafyrirtæki landsins hafa á að skipa miklum mannauði og mikilvægt er að tryggja að starfsmenn sem hverfa nú frá störfum geti komið nýsköpunarhugmyndum og frumkvöðlavinnu í farsælan farveg. Samningurinn miðar að því að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði öflugur bakhjarl þess fólks, en miðstöðin mun m.a. veita endurgjaldslausa handleiðslu varðandi stoðumhverfi nýsköpunar, styrki og stofnun fyrirtækja og setja á laggirnar sérstakt verkefni þar sem meðlimir SSF geta komið sérfræðiþekkingu á framfæri við fyrirtæki og stofnanir. Markmiðið er að Nýsköpunarmiðstöð Íslands verði fyrsti viðkomustaður þeirra meðlima SSF sem eru með nýjar viðskiptahugmyndir og þar verði eftirfarandi í boði:. - Farvegur fyrir nýsköpun og frumkvöðlavinnu.- Stuðningur við að móta viðskiptahugmyndir og útfærslu þeirra.- Aðstoð og aðgang að alþjóðlegum gagnagrunnum á sviði tækniyfirfærslu.- Skráning félagsmanna SSF í verkefnið ,,Sérfræðingur til nýsköpunar” en þar getur NMÍ komið félagsmönnum með ýmiss konar sérfræðiþekkingu á framfæri við fyrirtæki og stofnanir sem taka þátt í verkefninu. Eins geta félagsmenn orðið ,,sérfræðingar” í eigin frumkvöðlafyrirtæki.- Aðstoð og leiðsögn vegna doktorsnáms hjá rannsóknastofnunum og háskólum.Kynningarfundur um samstarfið var haldinn fyrir félagsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja þriðjudag 21. október kl 15.30 í Borgartúni 22- í sal flugvirkjafélagsins. Áhugasamir sem ekki komu þar geta skráð sig til þátttöku í verkefninu á ssf@nmi.is

Toppmynd